Velkomin á sumac

Sumac er innblásinn af nostalgísku andrúmslofti borgarinnar Beirút og er staður þar sem heimamenn og gestir geta notið dýrindis matargerðar frá Mið-Austurlöndum og seiðandi Miðjarðarhafskokteila.

Gjafabréf
Sümac Matreiðslubók
Áritað eintak

Ef þú vilt gefa upplifun þá geturðu keypt hjá okkur bæði gjafabréf á Sumac og OX auk áritaðs eintaks af Sumac bókinni.

Sumac hefur verið einn vinsælasti veitingastaður landsins um árabil og nú hefur matreiðslubók staðarins litið dagsins ljós. Í bókinni er lögð áhersla á ferskt og gott hráefni sem matreitt er undir áhrifum frá Mið-Austurlöndum og Norður-Afríku.